Dec 20, 2007

Gleðileg jól

elskurnar mínar.

Ekki viss um að ég muni blogga mikið næstu daga - maður þarf jú að græja jólin :-)

Kem með skemmtilegar jólasögur hingað fljótlega.

Þar til næst
Gleðileg jól!

Dec 17, 2007

varla gefst tími til...

... að blogga

Nældi mér í leiðindarpest í Köben - og er enn að kljást við hana.

Ætla rétt að vona að ég nái þessum andskota úr mér fyrir jól!

Fór að vísu á laugardaginn með örving og nokkrum samstarfsaðilum í Brynjudal í Hvalfirði þar sem við nældum okkur í, eða réttara sagt söguðum niður jólatré. Örving valdi tréið af mikilli kostgæfni og finnst það flottara en allt sem áður hefur sést hér á þessu heimili. Ég segi - no comment!

En þessi ferð var afdrifarík - mér sló svona hressilega niður af pestinni og hef verið meira og minna rúmliggjandi síðan. Tja - fyrir utan smá bæjarrölt á laugardagskvöldið, þá leið mér nefnilega bara nokkuð vel :-)

en þar til næst
ciao

Dec 5, 2007

enginn tími til að blogga

... ég er á faraldsfæti

En NY var æði - iðandi af lífi, á köflum aðeins of mikið kannski! Hef aldrei séð aðra eins mannmergð og á manhattan síðasta laugardag - svo segja menn að það séu margir í Kringlunni!

En þá er það bara off to Köben - verður huggó :-)

Hlakka samt til að koma heim aftur sérstaklega að hitta bakaravinkonur mínar og hjúpa með þeim - það eru ekki allir svona heppnir að eiga svona vinkonur - bæta upp mína baksturshæfileika!

þar til næst

farvel og på gensyn!