Jan 15, 2009

well...

...þá er búið að fara í hnakkaþykktarmælingu og allt 100% í lagi. Á að vísu eftir að fá út úr blóðprufunni, en hef ekki nokkrar einustu áhyggjur af þeim niðurstöðum :-) svo þetta er bara happy go lucky héðan af!

Ég bíð þó eftir þeim degi sem mér er ekki flökurt, ég gubba ekki og þarf ekki að leggja mig eftir vinnu - hvenær sá dagur kemur veit ég ekki, en ég mun taka honum fagnandi!

krílið er væntanlegt 26.júlí næstkomandi, kemur í ljós hvort stundvísi foreldranna skilar sér í genum þess.

þar til næst
ciao

2 comments:

Anonymous said...

Hæ skvís, til lukku með bumbubúann.
Kíki reglulega á bloggið þitt, þetta eru æðislegar fréttir.
Gangi þér rosalega vel.
Kv. Margrét x úr the city hall

ebbath said...

takk mín kæra!

Við ættum nú að hittast við tækifæri og fá okkur snarl saman í hádeginu og rifja upp gamalt slúður :-) ertu ekki á fésbúkk?