May 8, 2006

í dag..

...var ég heppin. Ég er aldrei heppin, nema í dag.

Fékk símtal frá Mastercard - fékk hnút í magan og hugsaðí með mér að bankinn hefði gleymt að skuldfæra júró reikninginn - en nei ekki það. Þá hélt ég að það væri út af þessari ferðaávísun sem ég var að röfla yfir í morgun - nei ekki það heldur.

Ég var s.s. heppin - ég vann ferð. Já þið lásuð rétt - ég vann ferð. Enga leiðinda ferð til Loðmundarfjarðar með tjald og prímus - ó nei! Ég er að fara til Parísar á ÚRSLITALEIKINN Í MEISTARADEILD EVRÓPU - ARSENAL vs. BARCELONA NÚNA Í NÆSTU VIKU!!!!!!!!!!!!!!!!
Flýg út á mánudag og kem heim á fimmtudag - flug, hótel og miði á leikinn - fyrir tvooooooo.

Ótrúlegt hvað maður á marga vinin núna sko!

En ákvað að bjóða "vini" mínum með mér - á reyndar eftir að koma í ljós hvort hann getur fengið sig lausan úr vinnu en ég krosslegg fingur og vona það besta!

Hef enn ekki sagt "örving" frá þessu - veit að hann verður doldið svektur að fá ekki að fara með - en hann er nú að fara með mér til Parísar í næsta mánuði svo það verður bara að hafa það - hann verður bara að bömmerast litli kallinn minn.

Ef að "vinurinn" kemst ekki með þá er ég búin að ákveða hvaða manneskju ég ætla að bjóða - læt ekki meira uppi um það hér :)

c'est tout
ciao

1 comment:

Anonymous said...

Til hamingju essgan! Ég var ekkert smá ánægð þegar ég frétti hér að þú hefðir verið dregin út!!! Og þetta eru ekkert prump miðar! Sæti á góðum stað með móttöku og eitthvað fíntfínt og húllumhæ. Segja allir vinningshafar á svona leiki að þetta sé priceless.... nema hvað???