Feb 29, 2008

hlaupársdagur..

... nokkrar staðreyndir um hlaupársdag:


Hvaða reglur gilda um hlaupár?

Um síðustu aldamót veltu margir því fyrir sér hvort árið 2000 yrði hlaupár. Flestir kunna þá reglu að hlaupár sé fjórða hvert ár, þegar talan 4 gengur upp í ártalinu. En menn hafa líka heyrt um undantekningar á aldamótum þegar ártalið endar á "00". Þetta olli því að ýmsir voru í vafa.

Það er rétt, að í því tímatali sem við fylgjum nú, gildir sérstök regla um þessi aldamótaár. Þau eru ekki hlaupár nema talan 400 gangi upp í ártalinu. Líka má orða það svo, að talan 4 þurfi að ganga upp í (tveimur) fremstu stöfum ártalsins, aldatalinu. Af því leiðir að árið 2000 var hlaupár, en árin 2100, 2200 og 2300 verða ekki hlaupár. Árið 2400 verður svo aftur hlaupár. Með öðrum orðum: þrjú af hverjum fjórum aldamótaárum falla úr tölu hlaupára og verða almenn ár.

Ef við förum aftur í tímann var árið 1900 ekki hlaupár og ekki heldur árið 1800, en árið 1700 var hlaupár á Íslandi af þeirri ástæðu að núgildandi tímatal, með breyttri hlaupársreglu (gregoríanska tímatalið) kom ekki til framkvæmda hér á landi fyrr en í nóvember árið 1700, en þá hafði febrúar þegar fengið 29 daga.

Reglur um hlaupár eru settar til að samræma lengd almanaksársins og árstíðaársins. Árstíðaárið ræðst af gangi jarðar um sólu og er sem stendur 365 dagar 5 stundir 48 mínútur og 45 sekúndur að meðaltali. Lengd almanaksársins er eins og allir vita ýmist 365 eða 366 dagar, en meðallengdin er venjulega talin 365 dagar 5 stundir 49 mínútur og 12 sekúndur.

Samkvæmt þessu er almanaksárið að meðaltali 27 sekúndum lengra en árstíðaárið. Þessi munur verður að einum degi á um það bil 3200 árum og er þess oft getið í bókum. Sú tala væri rétt ef bæði árstíðaárið og almanaksárið héldu óbreyttri lengd. En því er ekki að heilsa. Lengd árstíðaársins breytist lítils háttar með tímanum og styttist nú um 5 sekúndur á hverjum þúsund árum. Lengd almanaksársins getur líka breyst, því að á síðustu árum hafa menn tekið upp á því að skjóta inn aukasekúndum (sem kalla mætti hlaupsekúndur) á miðju ári eða um áramót til mótvægis við hægfara breytingu á snúningshraða jarðar. Að undanförnu hefur þetta verið gert um það bil einu sinni á ári, og við það hefur munurinn sem áður var nefndur aukist úr 27 sekúndum í 28 eða þar um bil. Ef breytingarnar verða með sama hraða í framtíðinni (sem engin vissa er um) myndi frávik almanaksárs frá árstíðaári nema einum degi á 2500 árum.

Gregoríanska tímatalið eða "nýi stíll" er kennt við Gregoríus páfa 13. sem innleiddi það í Róm árið 1582. Það kom strax til framkvæmda meðal rómversk-kaþólskra þjóða, en mótmælendur og grísk-kaþólskir fóru sér hægar. Þegar grísk-kaþólska rétttrúnaðarkirkjan leiðrétti um síðir tímatal sitt, árið 1923, vildu leiðtogar þeirrar kirkju ekki fallast á hlaupársreglu páfagarðs en samþykktu í staðinn enn nákvæmari reglu. Samkvæmt henni skyldu tvö af hverjum níu aldamótaárum vera hlaupár (þau ár sem gefa 2 eða 6 í afgang þegar deilt er í aldatalið með 9). Meðallengd almanaksáranna í þessu rétttrúnaðartímatali reiknast 365 dagar 5 stundir 48 mínútur og 48 sekúndur, og skakkar þá aðeins 3 sekúndum eða svo frá lengd árstíðaársins.

Tímatali rétttrúnaðarkirkjunnar ber saman við hið gregoríanska fram til ársins 2800, en þá á að verða hlaupár samkvæmt okkar tímatali en ekki hjá þeim rétttrúuðu. Væntanlega næst samkomulag um málið áður en að þeim tíma kemur. Víða um lönd hafa menn haft nokkra ótrú á hlaupársdeginum, mánuðinum eða jafnvel hlaupárinu öllu. Þá átti allt að ganga öfugt við það sem venjan bauð og flestar fyrirtektir að misheppnast. (tekið af http://www.almanak.hi.is/hlaupar.html)

Svo verður að geta þess líka að konur megi biðja sér karlmanns á hlaupárdeginum. Hann má þá ekki neita, en getur þó keypt sig lausan með gjöf eða gjaldi. - mér finnst að það ættu þá að vera einhvejar reglur um verðgildi gjafar eða upphæð gjalds!

...þessa punkta fann ég hér og þar á netinu - en ég vissi þetta með að biðja sér karlmanns - spurning hvað maður gerir :-) Ég hvet ykkur einhleypu kvennkyns lesendur til að nýta tækifærið!

nokkrir eiga afmæli í dag - hlýtur að vera undarlegt að eiga afmæli á 4 ára fresti - tja nema þegar eru aldarmót, þá á fólk ekki afmæli. Einhver kríli hljóta líka að fæðast í dag - spes svolítið.

Annars bara gleðilegan föstudag - og njótið þess að vera til :-) og eigið góða helgi

þar til næst
ciao

5 comments:

Anonymous said...

Er þú þá ekki komið með verkefni i kvöld í boðinu, fyrir miðnætti.

Rosa Rómó "verðandi frú"

Kveðja 901

Anonymous said...

Mikið svakalega þykir mér þú vera fróð! Mér fannst bara nógu merkilegt að græða heilan dag, til að geta komið meiru í verk!

ebbath said...

iss - þessar upplýsingar eru alveg hrikalega stolnar! En engu að síður gaman að svona fróoðleik!

Fyrir þig þarna breiðholts konu - þá ákvað ég að nota mér ekki þetta tækifæri - mér finnst það ekki mitt hlutverk að biðja mér manns - hann hlýtur að geta gert þetta, enda er þetta í mínum huga karlmannsverk :-) burt séð frá því hvað feminístar segja og gera!

Anonymous said...

Þú hefur vonandi látið vaða, annars þarftu að bíða í 4 ár þar til þú getur beðið kennarans næst.....

Þessi á horninu

ebbath said...

eins og áður hefur komið fram - þá finnst mér þetta vera karlmanns verk!