Oct 8, 2007

það er erfitt að...

...vera 12 ára og handleggsbrotinn. Elsku elsku örving minn, honum líður barasta ekkert vel. Auðvita er þetta ekki heimsendir, en honum finnst það vera svo.

Ég veit ekki hvað er eðlilegur tími að finna til í hendinni, eflaust einhverjir dagar - eða hvað? Ég er bara alls ekki viss. Ef hann verður ekki farin að skána af verkjum á morgun þá bjalla ég nú í þá doktorana á slysó og ræði við þá.

Ætla að lofa honum að vera heima aftur á morgun ef hann verður enn með verki í fyrramálið.

Litla músin mín er alveg ómöguleg - veit ekki hvernig ég get hresst hann við - legg höfuð í bleyti og allar tillögur vel þegnar :-)

þar til næst
ciao

2 comments:

Anonymous said...

Hæ Ebban,
Minn gaur hefur brotnað og ég man ekki til þess að hann hafi verið þjakaður af verkjum í marga daga,´rétt fyrst og síðan hafi aðalega kláði undan gifsinu háð honum....láttu kanna málið.
Vonandi grær þetta hratt og vel, bið kærlega að heilsa

venlig hilsen
Lára

ebbath said...

þetta er allt á réttri leið - verkirnir á undanhaldi!

hilsen til baka