Jan 10, 2007

það er gúrka í gangi...

... að minnsta kosti hjá Morgunblaðinu.

Ef fólk kíkir inn á forsíðu mbl.is akkúrat núna þá eru ÞETTA fyrirsagnirnar:

Allt með felldu í vetrarfuglatalningu - ég er mjög hrifin af fuglum almennt, en er nokkuð sama hvort allt sé með felldu í talningu eða ekki
Reynir að þyngjast til að komast í magaminnkun - spurning hvort þetta sé næsta trix???
Paris Hilton og Britney Spears þykja verst klæddu stjörnurnar - hmm, á nýlegum myndum er a.m.k. önnur þeirra ekki í nærbuxum þannig að þær ættu e.t.v. að fá titilinn minnst klæddu stjörnurnar eða hvað?
Bíll í Reykjavíkurtjörn - spurning um að keyra hægar og vera á almennilegum dekkum eða hvað?

og síðast en ekki síst (reyndar dottið af forsíðu þegar þetta er skrifað en samt!!!) Ekið á hreindýr - ég sé fyrir mér jakka!!!!


Svo sorgarfrétt fyrir aðdáendur Bechams
Beckham fær ekki nýjan samning við Real Madrid
Nú þarf kryddkonana hans að flytja með öll fínu fötin sín - hver ætli vilji hann næst - Japan??

þar til næst

3 comments:

Anonymous said...

ertu enn hætt? Ef svo er bravó, kv. H

ebbath said...

já enn hætt og hætt að telja líka

Anonymous said...

Davið Beckham er nebbla nýjasti liðsmaður Herbalife Team! Hann hefur verið ráðinn til L.A. Galaxy fótboltaliðsins í USA og stærsti styrktaraðili L.A. Galaxy er einmitt Herbalife! Þetta hlýtur að gefa okkur sem seljum Hörbó gott búst!

Hjördís